Við tökum virkan þátt í þróun íslenskrar baðmenningar.

Bláa Lónið hf. gegnir lykilhlutverki sem leiðandi afl innan íslenskrar ferðaþjónustu. Samhliða ábyrgri en markvissri stækkun á eignasafni okkar og uppbyggingu nýrra áfangastaða nýtist sérþekking og reynsla okkar vel í þróun heilsutengdrar ferðaþjónustu á landsvísu.
Í gegnum dótturfélag okkar, Íslenskar heilsulindir ehf., erum við virkur þátttakandi í þróun íslenskrar baðmenningar, en félagið á hlut í baðstöðum víða um land.
Markmið okkar er að til verði sterkt net af framúrskarandi baðstöðum sem styrkir forystu Íslands á alþjóðlegum vettvangi heilsuferðamennsku.

GeoSea er einstakt jarðhitabaðlón þar sem kraftur jarðhitans mætir steinefnaríkum sjó. Hér skapast einstök baðupplifun þar sem náttúra, vellíðan og stórbrotið útsýni fara saman.
GeoSea stendur á klettabelti með útsýni yfir Skjálfandaflóa. Í heitu vatninu geta gestir slakað á og notið útsýnisins yfir hafið, horft á hvali synda um flóann eða fylgst með norðurljósunum dansa á himninum.
GeoSea opnaði árið 2018 og hefur síðan orðið vinsæll áfangastaður jafnt meðal heimamanna sem ferðamanna – staður þar sem hægt er að staldra við, tengjast náttúrunni og njóta kyrrðarinnar.

Saga gufubaða í Mývatnssveit á rætur sínar að rekja til fyrri alda en í dag er henni haldið á lofti í nútímalegu umhverfi Jarðbaðanna við Mývatn. Þar er gestum frá öllum heimshornum boðið að upplifa íslenska náttúru og gestrisni.
Framkvæmdir standa yfir á aðstöðu Jarðbaðanna við Mývatn þar sem ný bygging rís, auk þess sem baðaðstaða verður bætt og stækkuð. Hönnun byggingarinnar og nýja lónsins tekur mið af einstakri náttúru Mývatnssveitar. Nýja byggingin er felld inn í umhverfið og grjót af svæðinu er nýtt í kanta, klæðningar, veggi og gólf. Gestir munu geta gengið beint ofan í lónið úr búningsklefum og ferðast um þrjú mismunandi svæði. Einnig bætist við grjótgufubað, foss, nýr bar og hraungjá sem skilur á milli svæða.

Vök Baths eru jarðhitaböð við bakka Urriðavatns á Austurlandi, í aðeins örfárra mínútna akstursfjarlægð frá Egilsstöðum. Hér fléttast saman heitt jarðhitavatn, kyrrð og stórbrotin náttúra Austurlands.
Böðin fljóta á vatninu og bjóða upp á útsýni yfir Urriðavatn, þar sem gestir geta slakað á í heitu vatninu umvafðið náttúru. Upplifunina má svo fullkomna með gufubaði og hressandi dýfu í köldum potti.