Bláa Lónið hf. á og rekur öflug fyrirtæki sem eru leiðandi hvert á sínu sviði.
.jpg)
Bláa Lónið hf. er móðurfélag öflugra fyrirtækja sem eru leiðandi hvert á sínu sviði og kjarnast um upplifunarferðaþjónustu, heilsu og vellíðan, húðvörur og þróun sjálfbærra áfangastaða.
Öll starfsemi okkar byggir á áralangri reynslu af rannsóknum, hönnun og nýsköpun með virðingu fyrir náttúrunni að leiðarljósi. Samspil vel mótaðra áherslna í hönnun og viðskiptum hefur staðsett dótturfélög okkar fremst í sínum flokki.

Félagið okkar byggir á traustum grunni Bláa Lónsins í Svartsengi, sem var stofnað árið 1992. Áfangastaðurinn hefur fest sig í sessi sem einn sá vinsælasti á Íslandi, auk þess sem vatnið í lóninu var útnefnt sem eitt af undrum veraldar af National Geographic.
Sem móðurfélagið Bláa Lónið hf. leggjum við reynslu og þekkingu Bláa Lónsins til grundvallar að núverandi rekstri á fjölbreyttu eignasafni.




Við byggjum þróunarverkefni okkar á skýrri framtíðarsýn og stöndum nú fyrir uppbyggingu í Þjórsárdal og við Hoffell. Með eignarhlut Bláa Lónsins hf. í félaginu Íslenskar heilsulindir ehf. eigum við hlut í baðlónum víða um land, þar með talið Fontana við Laugarvatn, GeoSea á Húsavík, Jarðböðunum við Mývatn og Vök Baths við Egilsstaði. Þannig gegnum við lykilhlutverki sem leiðandi afl innan íslenskrar ferðaþjónustu, einkum á sviði upplifunarferðaþjónustu, og fylgjum vel mótuðu leiðarljósi sem undirstrikar skuldbindingu okkar til sjálfbærni fyrir umhverfið, samfélög og efnahag.
Frá upphafi hefur öll okkar uppbygging tekið mið af náttúrunni og eiginleikum hennar með það að markmiði að skapa mannvirki sem standast tímans tönn og gera undur náttúrunnar aðgengileg öllum.