Við störfum í samræmi við skuldbindingu okkar til sjálfbærni fyrir umhverfi, fólk, samfélög og efnahag.


Leiðarljós okkar kjarnar stefnu Bláa Lónsins hf. að sjálfbærri framtíð. Við leggjum skýra áherslu á sjálfbærni í stefnumótun okkar sem stuðlar að aukinni skilvirkni, bættu skipulagi, skýrri markmiðasetningu, og þar með velgengni. Við stefnum í átt að sjálfbærri framtíð fyrir alla, land og lýð, samkvæmt leiðarljósinu: Uppspretta vellíðunar í sátt við náttúru og nærsamfélag.
Leiðarljós okkar byggir á fjórum stoðum sem undirstrika markmið okkar um að hafa jákvæð áhrif með víðtækum hætti. Þessar grunnstoðir hafa mótað starfsemi okkar frá upphafi og munu þær halda áfram að vísa okkur veginn í stefnumótun jafnt sem daglegum störfum.