Við náum árangri saman.

Starfsumhverfi Bláa Lónsins hf. hefur frá upphafi einkennst af samheldni, framsækni, jákvæðni og fagmennsku. Allt starfsfólk tekur virkan þátt í að viðhalda og móta þá sterku menningu sem einkennir starfshópinn okkar. Þannig tökumst við á við áskoranir og fögnum árangri saman.

Vinnuumhverfi Bláa Lónsins hf. og allra dótturfélaga er hannað með það að markmiði að stuðla að og efla heilsu og öryggi starfsfólks. Með íþróttastyrk býðst starfsólki tækifæri til að stunda reglulega líkamsrækt og efla andlega heilsu, enda er hreyfing og líkamleg heilsa grunnurinn að vellíðan í leik og starfi.
Með virku samtali leitum við stöðugt leiða til að bæta starfsumhverfið með því að huga að öryggi, heilsu og jafnvægi, veita stuðning, bjóða eftirsóknarverð fríðindi og sveigjanleika og standa að verkefnum sem efla langtímaheilsu.

Í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur eru gæða- og umhverfismál höfð í öndvegi, enda störfum við samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum stjórnunarstöðlum: ISO 9001 fyrir gæðastjórnun, ISO 14001 fyrir umhverfisstjórnun og ISO 45001 fyrir heilsu- og öryggisstjórnun. Þessir staðlar tryggja gæði í þjónustu og framleiðslu, auka velferð og öryggi starfsfólks og gesta, stuðla að umhverfisvernd og hvetja til stöðugra umbóta í okkar ferlum.
Við leggjum áherslu á skara fram úr á okkar sviðum og að vera leiðandi afl. Þau verðlaun og viðurkenningar sem við höfum hlotið á undanförnum árum eru mikilvæg hvatning til að viðhalda hæstu gæðastöðlum í starfi og hvetja okkur til áframhaldandi góðra verka.
