Afkomueiningar

Uppspretta vellíðunar í sátt við náttúru og nærsamfélag.

Bláa Lónið

Bláa Lónið er einn fjölsóttasti ferðamannastaður á Íslandi, enda vatn þess einstakt á heimsvísu. Það á uppruna sinn á 2000 metra dýpi, er ríkt af kísli, þörungum og stein­efnum og var valið á lista National Geographic sem eitt af 25 undrum veraldar.
Um Bláa LóniðÁrið í hnotskurn
Silica Hotel est 2005

The Retreat

The Retreat er margverðlaunað hótel í hæsta gæðaflokki. Það er byggt inn í aldagömul jarðlög og umkringt jarðsjó Bláa Lónsins. Innan hótelsins má finna Michelin-veitinga­staðinn Moss og Retreat Spa.
Um The RetreatÁrið í hnotskurn

Blue Lagoon Skin Science

Í húðvörum Blue Lagoon Skin Science, sem framleiddar eru úr lífvirkum innihaldsefnum Bláa Lónsins, sameinast virkni, vísindi og sjálfbærni.
Um Blue Lagoon Skin ScienceÁrið í hnotskurn

Kerlingarfjöll

Kerlingarfjöll Highland Base er innan friðlýsts verndarsvæðis á hálendinu þar sem öfgar íslenskrar náttúru einkenna landslagið. Þar er boðið upp á gistingu við allra hæfi og ótal afþreyingarmöguleika.
Um KerlingarfjöllÁrið í hnotskurn

Hrauneyjar og Hoffell

Bláa Lónið hf. rekur einnig hótel í Hrauneyjum og bæði gistiaðstöðu og böð við Hoffell. Á Hótel Hrauneyjum er boðið upp á gistingu á viðráðan­legu verði nálægt ósnortinni náttúru í návígi við hálendi Íslands. Í Hoffelli er gistiaðstaða í fallega uppgerðum bóndabæ og heit böð, rétt við rætur Hoffellsjökuls.
Aðrir áfangastaðir Árið í hnotskurn

Þróunarverkefni

Þróunarverkefni Bláa Lónsins hf. hafa frá upphafi verið mótuð í sátt og samlyndi við náttúru og nær­samfélag hvers áfangastaðar fyrir sig. Hvert verkefni er unnið sam­kvæmt skuldbindingu okkar til sjálfbærni fyrir umhverfið, fólk, samfélög og efnahag. Við stöndum nú fyrir uppbyggingu í Þjórsárdal og við Hoffell og nálgumst þau verkefni út frá okkar skýru fram­tíðar­sýn, nú sem endranær.
Um þróunarverkefnin

Silica Hotel

Silica Hotel stendur í 800 ára gömlu hrauni á Reykjanesskaga, á þeim stað þar sem saga Bláa Lónsins hófst. Árið 1994 stofnaði Grímur Sæmundsson læknir Heilsulind Bláa Lónsins hér og lagði grunninn að vísindalega viðurkenndri psoriasis-meðferð sem íslenskir sjúklingar hafa fengið sér að kostnaðarlausu frá 2016, í samstarfi við ríkið.

Á Silica hótelinu eru 35 stílhrein herbergi með útsýni yfir hraunið og þitt eigið lón. Engin furða að Travel + Leisure hafi valið það besta hótel Íslands árið 2023.
Silica Hotel

Fontana

Fontana er við Gullna hringinn, í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík. Þar sameinast slökun, hefðir og undur Íslands.
Fontana