Mannauður

Samheldni, framsækni, jákvæðni og fagmennska.

Samheldni og hvatning

Hjá Bláa Lóninu hf. starfar fjöl­breyttur hópur einstaklinga með ólíkan menningarbakgrunn og mismunandi færni, reynslu og þekkingu. Við leggjum áherslu á samheldni og liðsheild og hvetjum hvert annað áfram.

Fólkið okkar

Bláa Lónið hf. hefur frá upphafi verið drifið áfram af forvitni og framsækni starfsfólks og erum við stolt af þeim metnaði og sköpunar­krafti sem knýr okkur áfram.

Hjá okkur starfa einstaklingar af 42 mismunandi þjóðernum sem sam­einast um að skapa ógleyman­legar minningar fyrir gesti og hvert annað, með áherslu á nýsköpun í þjónustu, hönnun, upplifun og vöru­þróun.

Fjölbreytileiki og jöfnuður

Við trúum því að framúrskarandi starfsemi sé aðeins möguleg þegar hæfileikar hvers og eins geta notið sín. Þess vegna sköpum við rými fyrir alla til að nýta styrkleika sína og vinnum sífellt að því að koma í veg fyrir hvers konar mismunun með því að fagna fjölbreytileikanum og gæta jafnréttis.

Í ráðningum leggjum við okkur fram við að jafna kynjahlutföll ásamt því að ráða hæfustu einstaklingana hverju sinni. Bláa Lónið fékk fyrst jafnlaunavottun samkvæmt jafn­launastaðli ÍST 85 árið 2018 og var eitt af fyrstu stórfyrirtækjum á Íslandi til þess.

Við leggjum metnað í að stuðla að jafnrétti kynjanna og að hver ein­staklingur sé metinn á eigin for­sendum, óháð kyni, kynþætti eða öðrum órökstuddum viðmiðum.

Fjöldi starfsfólks

836

Þjóðerni

44

Fræðslustundir

8379

Konur í stjórnunarstöðu

57%

Þjálfun,
 fræðsla og 
framfarir

Bláa Lónið hf. er leiðandi í starfs­þróun, fræðslu og menntun starfs­fólks. Við eflum og styðjum við faglega þróun með því að fjárfesta stöðugt í fræðslu og þjálfun svo starfsfólk okkar geti sinnt verkefnum sínum sem best, ráðið við þær breytingar sem kunna að verða og fengið tækifæri til að vaxa og þroskast í starfi.

Við hvetjum til símenntunar með því að bjóða námsstyrki, sveigjanlegt vinnufyrirkomulag og annan stuðning og greiðum þannig leið til menntunar samhliða vinnu. Við viljum skapa umhverfi þar sem allir upplifa sig velkomna. Þess vegna styðjum við starfsfólk sem ekki hefur íslensku að móðurmáli til að læra tungumálið, sem eflir inngildingu og tengsl þeirra við íslenskt samfélag og eykur hæfni í starfi.