Eitt af undrum veraldar.

Vatn Bláa Lónsins er ólíkt öllu öðru. Það á uppruna sinn á 2.000 metra dýpi, blanda af söltum sjó og ferskvatni. Ríkt af kísli, þörungum og steinefnum. Árið 2012 valdi National Geographic Bláa Lónið eitt af 25 undrum veraldar.

Bláa Lónið var stofnað árið 1992 og er í dag einn fjölsóttasti áfangastaður landsins. Þar er maskabar, gufubað, eimbað, kalt lón og bar. Einnig er boðið upp á nudd og aðrar meðferðir í vatninu sjálfu
Bláa Lónið
Veitingastaðurinn Lava er byggður inn í hraunið sem umlykur lónið. Matargerðin byggir á fersku íslensku gæðahráefni og útsýnið yfir lónið og hraunbreiðuna á sér fáar hliðstæður.

Blue Café er með útsýni yfir lónið og rúmgott setusvæði fyrir gesti sem vilja staldra við. Flestir réttir eru í þægilegum, umhverfisvænum umbúðum og því auðvelt að taka þá með í næsta áfanga ferðalagsins. Á matseðlinum eru einnig vegan- og grænmetisréttir.
Blue Café
Rannsóknir hafa verið kjarninn í starfsemi Bláa Lónsins frá stofnun þess árið 1992. Upphafið má rekja til ársins 1987, þegar Grímur Sæmundsen læknir og vísindateymi hans, þar á meðal Ása Brynjólfsdóttir, hófu að kanna lækningamátt jarðsjávarins.
Í Þróunarsetri Bláa Lónsins eru virk efni úr jarðsjónum, kísill, steinefni og þörungar, rannsökuð og einangruð. Setrið þróar jafnframt aðferðir til að nýta þau, meðal annars með því að rækta þörunga með koldíoxíði úr jarðhitagasi, sem dregur úr umhverfisáhrifum.