Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.

Kynningarfundur fyrir almenna fjárfesta fer fram í Hörpu þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10.00 í salnum Kaldalón.
Fundurinn er ætlaður fjárfestum og almenningi þar sem farið verður yfir fyrirkomulag útboðsins og gefið tækifæri á því að spyrja spurninga. Á fundinum verða Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins og Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans.
Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu.
Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
Bláa Lónið hf. er íslenskt hlutafélag sem sinnir rekstri, þróun og markaðssetningu á heilsu- og vellíðunarþjónustu. Félagið sérhæfir sig í rekstri áfangastaða á heimsmælikvarða sem byggja á hönnun, gæðum, einstökum eiginleikum íslenskrar náttúru og áratuga reynslu. Þar á meðal er Bláa Lónið, eitt þekktasta baðlón heimsins, The Retreat, Silica Hotel og Highland Base Kerlingarfjöll, baðlón Fontana við Laugarvatn og Blue Lagoon Skin Science, alþjóðlegt húðvörumerki sem byggir á áratuga rannsóknum og einstökum innihaldsefnum úr jarðsjó Bláa Lónsins. Bláa Lónið hf. hefur einnig gert samning um kaup á öllu hlutafé í Arctic Adventures hf., sem er leiðandi upplifunar- og ævintýraferðaþjónustufyrirtæki. Allir fyrirvarar vegna kaupanna hafa verið uppfylltir og verður félagið því hluti af samstæðunni fyrir lok nóvember. Bláa Lónið hf. vinnur einnig að umfangsmikilli uppbyggingu í Þjórsárdal, þar sem Fjallaböðin, Mountain Retreat og Gestastofa munu rísa, auk þróunar nýs baðlóns og hótels á Hoffelli. Bláa Lónið á jafnframt hluti í völdum áfangastöðum víða um land: Jarðböðunum við Mývatn, Vök á Egilsstöðum og Sjóböðunum á Húsavík
Helstu skilmálar útboðsins
| Áskriftarbók A | Áskriftarbók B | |
|---|---|---|
| Stærð áskrifta | Áskriftir frá 100.000 kr. – 20.000.000 kr | Áskriftir yfir 20.000.000 kr. |
| Útboðsgengi | Fast verð 95 kr. á hlut. | Tilboð skulu gerð á eða yfir lágmarksverði 95 kr. á hlut. Salan fer fram á föstu verði, sem ákvarðast jafnt og það lægsta af samþykktum tilboðum (hollenskt útboð). |
| Stærð útboðs | Til sölu verða 45.000.000 hlutir (30% af stærð útboðsins). | Til sölu verða 105.000.000 hlutir (70% af stærð útboðsins). |
| Úthlutun vegna umframeftirspurna | Áskriftir í áskriftarbók A verða skertar hlutfallslega, þó þannig að leitast verður við að skerða ekki áskriftir undir 1.000.000 kr. og flötum niðurskurði beitt á hæstu áskriftir ef það dugar ekki til. Leitast verður við að skerða ekki áskriftir starfsmanna félagsins upp á fjárhæð 5.000.000 kr | Áskriftir sem eru á eða yfir útboðsgengi áskriftarbókar B verða samþykktar, þó þannig að ef umframeftirspurn verður í þessum hluta útboðsins verða áskriftir skertar. Við skerðingu í áskriftarbók B verða áskriftir metnar á grundvelli verðs. Þannig verður leitast við að skerða ekki áskriftir sem eru yfir útboðsgengi áskriftarbókar B en þær áskriftir sem eru á útboðsgengi áskriftarbókar B verða skertar hlutfallslega með tilliti til fjárhæðar áskrifta á því gengi. Öll samþykkt tilboð verða samþykkt á sama gengi: Útboðsgengi áskriftarbókar B. |
Kynningarfundur:
Bláa Lónið hf. býður til opins kynningarfundar í tengslum við almennt hlutafjárútboð félagsins. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember í Hörpu og er öllum opinn auk þess sem honum verður streymt á netinu. Beint vefstreymi verður aðgengilegt á vefsíðu Landsbankans www.landsbankinn.is/blaalonid og á vefsíðu Bláa Lónsins www.blaalonidhf.is/fjarfestar.
Landsbankinn hf. og Fossar fjárfestingarbanki hf. eru umsjónar- og söluaðilar útboðsins.
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar um Bláa Lónið hf., hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins, sem dagsett er 5. nóvember 2026, og fjárfestakynningu. Lýsinguna og fjárfestakynninguna má finna á www.landsbankinn.is/blaalonid. Skjölin eru einnig aðgengileg hér að neðan:
Auglýsing. Vakin er athygli á því að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu. Fjárfestar eru hvattir til að lesa birta lýsingu félagsins, sem staðfest hefur verið af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, áður en ákvörðun um fjárfestingu er tekin til að skilja til fulls mögulega áhættu og ávinning fjárfestingarinnar. Staðfestingu fjármálaeftirlitsins ber ekki að skilja sem stuðning við útgefandann eða þau verðbréf sem boðin eru eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Lýsinguna má finna á þessari síðu og www.landsbankinn.is/blaalonid
Landsbankinn hf. og Fossar fjárfestingabanki, umsjónaraðilar útboðsins, veita upplýsingar og tæknilega aðstoð:
| Umsjónaraðili | Áskriftarbók A | Áskriftarbók B |
|---|---|---|
![]() | Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans hf.: Sími: +354 410-4040 Tölvupóstfang: bl@landsbankinn.is | Landsbankinn hf.: Sími: +354 410-4040 Tölvupóstfang: bl@landsbankinn.is |
![]() | Fossar fjárfestingarbanki hf. Sími: +354 522-4000 Tölvupóstfang: bl@fossar.is | |