
Bláa Lónið hf., Norðurljósavegi 9, 241 Grindavík, er móðurfélag öflugra fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu, heilsu og vellíðan, húðumhirðu og þróun áfangastaða með sjálfbærni að leiðarljósi.
Bláa Lónið hf.vinnur ekki með persónuupplýsingar gesta eða viðskiptavina í eigin þágu sem ábyrgðaraðili, í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Hvert dótturfélag í félagasamstæðu Bláa Lónsins hf. ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem varða gesti þess og viðskiptavini, eins og nánar er lýst í persónuverndarstefnum félaganna sem aðgengilegar eru á vefsíðum þeirra.
Bláa Lónið hf. veitir dótturfélögunum ýmsa stoðþjónustu, s.s. á sviði upplýsingatækni, mannauðsmála og fjármála. Þegar við vinnum með persónuupplýsingar fyrir hönd dótturfélaganna gerum við það sem vinnsluaðili, á grundvelli svokallaðra vinnslusamninga um meðferð viðkomandi persónuupplýsinga.
Ef þú hefur samband við Bláa Lónið hf. vinnum við með tengiliðaupplýsingar þínar, auk upplýsinganna sem þú sendir okkur, til þess að geta svarað þér eða brugðist við erindi þínu. Lagagrundvöllur slíkrar vinnslu eru þeir lögmætu hagsmunir sem við höfum af því að bregðast við erindum sem okkur berast.
Á vefsíðunni okkar eru notaðar vefkökur í því skyni að tryggja rétta virkni síðunnar og birta fyrir notendum eins viðeigandi upplýsingar og unnt er hverju sinni, auk þess að greina notkun hennar. Í gegnum vefkökustillingar má nálgast ítarlegar upplýsingar um allar vefkökur á vefsíðunni, þar á meðal um eðli þeirra, tilgang og líftíma.
Við vinnum með persónuupplýsingar þeirra sem sækja um starf hjá okkur. Tilteknar upplýsingar eru nauðsynlegar við mat umsókna, svo sem tengiliðaupplýsingar, ferilskrá, kynningarbréf, upplýsingar um menntun, niðurstöður úr ráðningarviðtölum, umsagnir þriðja aðila og önnur samskipti viðumsækjendur.
Þessi vinnsla er nauðsynlegur liður í því að stýra ráðningarferlinu og meta hæfni umsækjenda. Lagagrundvöllur vinnslu persónuupplýsinga um umsækjendur eru þeir lögmætu hagsmunir sem við höfum af því að ráða til okkar hæft starfsfólk. Auk þess er tiltekin vinnsla nauðsynlegur undanfari þess að gera megi ráðningarsamning.
Við geymum persónuupplýsingar umsækjenda aðeins á meðanráðningarferli stendur, nema umsækjandi samþykki að þær séu geymdar lengur vegna atvinnutækifæra sem gefast síðar. Umsækjendur um störf fá, eftir því sem við á, sérstaka fræðslu um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram af okkar hálfu í umsóknar- og ráðningarferli.
Ef þú hefur einhverjar spurningar um framangreindar upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga af hálfu Bláa Lónsins hf., getur þú haft samband við okkur með tölvupósti á netfangið gdpr@bluelagoon.com
23. október 2026