Kerlingarfjöll

Árið 2025 í hnotskurn.

Ævintýralegur áfangastaður

Á þriðja starfsári Kerlingarfjalla jókst bæði aðsókn og umfjöllun til muna, og greinilegt að góður grundvöllur er fyrir áfangastað á hálendi Íslands.  

Viðburðir

Fjölbreyttir viðburðir voru haldnir í Kerlingarfjöllum á árinu og var sérstök áhersla á matarupplifun. Valentínusar- og aðventuhelgar voru haldnar sem fyrr, í september var brúðkaup, og í október var í fyrsta sinn haldinn Michelin-matarviðburður á hálendinu. Fyrirkomulagi á veitingastaðnum var breytt og er þar nú boðið upp á veitingar à la carte, frekar en hlaðborð, sem hefur aukið tekjur, ekki síður en þjónustu við gesti.

Fjallahlaupið Kerlingarfjöll Ultra var haldið í annað sinn, stærra í sniðum en í fyrra, og tóku um 400 hlauparar þátt í viðburðinum. Hlaupið fór fram í góðu samstarfi við Náttúruverndarstofnun og Björgunarsveitina á Flúðum sem sinnti öryggisgæslu.

Framboð og afþreying

Til að efla þekkingu innan fyrirtækisins og auka tekjur var lögð áhersla á að starfsfólk Kerlingarfjalla framkvæmi sem mest af þeirri afþreyingu sem þar er í boði.

Í sumar var sérstök áhersla á dagsferðir, þar sem uppselt var í gistingu, og bættist sérstök dagsferð úr Reykjavík, með stoppi við Gullfoss, Geysi og í Hveradölum, við vöruframboð Kerlingarfjalla.

Einnig var framboð á vetrarafþreyingu aukið og bættust tveir nýir möguleikar við; vetrarganga með leiðsögumanni frá Kerlingarfjöllum og samsett snjósleða- og gönguferð þar sem gestum gefst tækifæri á að heimsækja Hveradali að vetri til, sem hefur hingað til ekki verið mögulegt. Þessi vöruþróun fól í sér vinnu sem einfaldar og straumlínulagar vetrarafþreyinguna í takt við aðstæður á hálendinu.

Aukin áhersla var á sölu gjafabréfa, og jókst hún jafnt og þétt, með eftirtektarverðri aukningu á sölu á tilboðsdögum í aðdraganda jóla.  

Framkvæmdir

Ráðist var í töluverðar endurbætur á húsnæði í Kerlingarfjöllum á árinu þegar öll herbergi í Öldunni, elsta hluta hótelsins sem reistur var af fyrri rekstraraðilum, voru tekin í gegn. Einnig opnaði búð í anddyri hótelsins í júlí, þar sem seldur er útivistarbúnaður, merktur varningur og vörur frá Blue Lagoon Skin Science.

Verðlaun og viðurkenningar

Kerlingarfjöll hlutu sinn fyrsta Michelin-lykil á árinu, en þeir eru veittir hótelum og gististöðum sem standast strangar gæðakröfur. Kerlingarfjöll unnu einnig til Fast Company’s Innovation by Design verðlaunanna 2025 í flokki bestu hönnunar í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku, og hlutu viðurkenningu í arkitektúrflokki sömu verðlauna.