Ágætu hluthafar.
Það er við hæfi að líta yfir farinn veg við þau tímamót sem fram undan eru.
Þegar ég var ungur læknir á níunda áratugnum, taldi ég tækifæri á Íslandi til að byggja upp heilsuferðaþjónustu við Bláa Lónið, í ljósi orðspors sem skapast hafði um að í lóninu leyndist lækningamáttur við húðsjúkdómum og sérstaklega psoriasis.
Þetta leiddi til þess að Heilsufélagið við Bláa lónið ehf. var stofnað þann 1. júní 1992, félag sem heitir í dag Bláa Lónið hf.
Í upphafi stóð félagið fyrir vísindarannsóknum, sem staðfestu lækningamátt jarðsjávarins, sem á þessum tíma var verðlaust frárennsli frá jarðvarmaorkuveri Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi.
Með samspili hönnunar og náttúru í fyrirrúmi reistum við núverandi baðstað árið 1999. Þar tókst okkur að skapa einstaka upplifun byggða á íslenskri baðmenningu, sem varð til þess að vinsældir áfangastaðarins Bláa Lónsins urðu þær sem raun ber vitni.
Við höfum alla tíð verið trú lækningamættinum og upprunanum og okkur hefur tekist að skapa fjölnýtanlega auðlind úr verðlausu frárennsli, þar sem grunnurinn er vísindarannsóknir á lækningamætti, lífvirkum efnum og efnasamsetningu Bláa Lónsins.
Þessa þekkingu höfum við meðal annars notað til að þróa húðvörur okkar, þar sem einkaleyfisvarin lífvirk efni unnin úr lóninu leika lykilhlutverk.
Við fengum ánægjulega staðfestingu á því að Bláa Lónið væri einstakt á heimsvísu þegar National Geographic valdi vatn Bláa Lónsins á lista sinn yfir 25 undur veraldar árið 2012, vegna lækningamáttarins.
Hjá Bláa Lóninu hf. höfum við alla tíð lagt áherslu á gæði, hönnun, sjálfbærni og samfélagsábyrgð með virðingu fyrir umhverfi og nærsamfélagi í allri okkar uppbyggingu og starfsemi.
Þar hefur frábær mannauður félagsins verið í lykilhlutverki og hann staðið vörð um þessi grunngildi og einkunnarorð félagsins: Uppspretta vellíðunar í sátt við náttúru og nærsamfélag.
Í þessu samhengi er gaman að hugsa til þess að Bláa Lónið hf. hefur á undanförnum þremur áratugum vaxið úr einum starfsmanni á kontór í Grindavík í einn fjölmennasta vinnustað landsins með 800 manns á launaskrá.
Við hjá Bláa Lóninu hf. höfum tekist á við nokkrar mjög erfiðar áskoranir á vegferð okkar.
Þegar bankahrunið skall á árið 2008 höfðum við nýlokið miklum framkvæmdum en komumst í gegnum þá erfiðu tíma með reisn.
Þegar ferðamönnum til Íslands fór að fjölga eftir hrunið jókst aðsókn, sem krafðist bættrar aðstöðu ásamt aðgangsstýringu og byggingu The Retreat. Sú framkvæmd hélst í hendur við nýja mörkun á Blue Lagoon vörumerkinu og opnaði í fyrsta skipti á Íslandi aðgang að markhópi auðugra ferðamanna.
Í heimsfaraldrinum þurfti ég að taka erfiðustu stjórnunarákvörðun míns starfsferils, að segja upp 600 manns.
Ég er þó um leið stoltur af því, að við, þeir 120 sem eftir voru, náðum að nota faraldurstímann til að undirbúa viðspyrnu og við komum sterkari út úr faraldrinum, en við fórum inn í hann.
Ég er einnig stoltur af því hvernig við höfum undanfarin tvö og hálft ár tekist á við tímabil jarðhræringa á Reykjanesi og þeirri ákvörðun sem ég tók um að segja ekki upp starfsfólki þegar þær hófust.
Sú ákvörðun reyndist gæfurík og lykillinn að þeirri samheldni og þeim styrk sem starfsfólkið okkar hefur sýnt í gegnum tímabil eldsumbrota á Reykjanesi. Nú eru vaxandi vonir um að því tímabili sé að ljúka og ég hef fulla trú á að við munum einnig koma sterkari út úr þessum hamförum en við fórum inn í þær.
Það hefur verið ómetanlegt að takast á við áskoranir og tækifæri við hlið þess frábæra samstarfsfólks sem ég hef verið svo lánsamur að fá að til liðs við mig á öllum þessum árum sem liðin eru frá því að ég hafði forgöngu um stofnun Bláa Lónsins hf.
Okkur hefur tekist að framkvæma ótrúlega hluti og ég efast um að nokkuð annað fyrirtæki, hvorki hér né erlendis, hefði getað tekist á við velgengni og mótbyr síðustu áratuga með sama hætti og við hjá Bláa Lóninu hf.
Bláa Lónið hf. er og hefur verið í forystuhlutverki í þróun íslenskrar ferðaþjónustu og hefur með nýsköpun sinni og uppbyggingu vörumerkisins Blue Lagoon Iceland, sem er orðið þekkt um allan heim, styrkt Ísland verulega á alþjóðlegum vettvangi sem heilsu- og vellíðunaráfangastað.
Um leið höfum við skapað nýja atvinnugrein á Íslandi, sem er rekstur baðstaða og baðlóna.
Við getum nú státað okkur af því að leiða stærstu atvinnugrein landsins, með áfangastaði í rekstri og uppbyggingu víða um land og auðvitað okkar krúnudjásn, Bláa Lónið í Svartsengi, sem er einstakt á heimsmælikvarða.
Ég hef fulla trú á því að við eigum mikið inni, bæði hjá Bláa Lóninu hf. og Íslandi í heild sinni.
Nú horfum við til þess að njóta krafta nýs forstjóra, Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, sem kemur til starfa með nýja orku og ferska sýn á rekstur félagsins.
Ég tel okkur stíga inn í þessar stóru breytingar á hárréttum tíma, því á margan hátt er komið að kaflaskilum hjá félaginu sem við höfum byggt upp frá grunni síðustu áratugi.
Nú undirbúum við skráningu Bláa Lónsins hf. á verðbréfamarkað í rekstrarumhverfi, sem hefur breyst með ógnarhraða síðustu misseri, meðal annars með innreið gervigreindar.
Auk þess hefur samkeppnisumhverfið breyst, en aukin samkeppni er okkur holl og ég trúi því að við getum náð enn frekari árangri í þessu nýja og spennandi landslagi.
Ég stíg sáttur til hliðar sem forstjóri, en ætla áfram að leggja félaginu og nýjum forstjóra lið sem stjórnarformaður og horfi til framtíðarinnar af mikilli bjartsýni á þessum tímamótum.
Framtíðarsýn mín hefur allt frá stofnun Bláa Lónsins hf. verið: Heilsulandið Ísland, einstakur áfangastaður heilsu og vellíðunar.
Tækifærin blasa við okkur, við erum rétt að byrja!