Kæru hluthafar,
Árið 2025 var að mörgu leyti einstakt í sögu Bláa Lónsins, en áhrif jarðhræringa á rekstur félagsins voru mun minni en árið 2024. Á árinu gaus tvisvar sinnum og voru eldgosin virk í samtals 23 daga í stað 121 dags árið áður. Þrátt fyrir það þurfti aðeins að loka starfsstöðvum okkar í Svartsengi í tvo daga. Viðbragðsaðilar og stjórnendur félagsins hafa öðlast einstaka reynslu í því að meta aðstæður og viðbragð. Þótt tiltölulega langt sé um liðið frá því að síðast gaus, eða í júlí síðastliðinn, er starfsfólk ávallt viðbúið því að rýma þurfi fyrirvaralaust. Veðurstofan hefur hafið vinnu við að útbúa langtímahættumat í stað þess skammtímamats sem gefið hefur verið út reglulega frá upphafi hræringanna. Með slíku mati má gera ráð fyrir að allt skipulag félagsins og utanumhald tengt mögulegum jarðhræringum verði einfaldað sem mun hafa mjög jákvæð áhrif á reksturinn.
Rétt er að taka það fram að stöðugt koma fram sterkari vísbendingar um að eldgosahrinu þessari á Sundhnjúksgígaröðinni fari senn að ljúka.
Tekjur Bláa Lónsins hf. námu 156,1 milljónum evra á liðnu ári. EBITDA nam rúmlega 29,4 milljónum evra samanborið við tæplega 9,6 milljónir evra árið á undan. Hagnaður af rekstri samstæðunnar nam 6,6 milljónum evra. Efnahagslegt mikilvægi félagsins er eins og áður óumdeilt en skattspor þess nam rúmlega 4,3 milljörðum íslenskra króna á árinu og samanstendur m.a. af staðgreiðslu launa, VSK og öðrum opinberum gjöldum.
Eignir í lok árs námu 423,5 milljónum evra og nam eigið fé félagsins samtals 220,8 milljónum evra í lok árs 2025. Efnahagur félagsins er áfram traustur en eiginfjárhlutfall félagsins var 52% í árslok sem hlýtur að teljast gott í ljósi umfangsmikilla fjárfestinga og uppbyggingarverkefna félagsins á liðnu ári.
Eins og fyrri ár höfðu jarðhræringarnar margvísleg afleidd áhrif á starfsemi félagsins. Á árinu voru byggð ný bílastæði innan varnargarða í stað þeirra sem fóru undir hraun í lok árs 2024. Nýju bílastæðin eru þónokkuð stærri en þau sem fyrir voru og er nú hægt að taka á móti 450 bílum eða rútum í senn sem er um 100 fleiri en áður. Þessi framkvæmd var eðlilega kostnaðarsöm og hafði nokkuð truflandi áhrif á gesti okkar en hún var nauðsynleg engu að síður.
Þar sem ekki hefur verið greiddur út arður úr félaginu síðustu 7 ár, hefur fjárhagsstaða félagsins gert stjórnendum kleift að halda áfram markvissri og metnaðarfullri uppbyggingu bæði innan Svartsengis og víðar um landið.
Um mitt síðasta ár lauk byggingu nýrrar upplifunaraðstöðu í baðlóninu í Svartsengi auk þess sem ráðist var í endurnýjum á öllum bað- og búningsklefum og þeim fjölgað. Framkvæmdunum lauk um mitt ár en meðan á þeim stóð var framboð tekið umtalsvert niður þó áhersla hafi ætið verið á að gera allt sem hægt væri til að halda rekstri gangandi og tryggja sem besta upplifun gesta miðað við aðstæður.
Á liðnu ári hófst loksins eiginleg uppbygging Fjallabaðanna við Rauðukamba í Þjórsárdal eftir tæplega 10 ára undirbúning. Þar mun rísa 40 herbergja lúxushótel ásamt baðstað með einstakt útsýni yfir náttúruperluna Þjórsárdal. Eins og áður hefur komið fram á okkar fundum mun Gestastofa Þjórsárdals samtímis rísa framar í dalnum, þar sem rekin verður upplýsingamiðstöð og veitingastaður, auk smáhýsaþyrpingar og tjaldsvæðis við Selhöfða. Áætlað er að rekstur hefjist á vormánuðum 2028.
Við uppbyggingu í Þjórsárdal er stuðst við sömu hugmyndafræði og í Kerlingarfjöllum á sínum tíma: að tvinna saman hönnun og náttúru til að mæta þörfum mismunandi markhópa sem vilja heimsækja og njóta þessara einstöku svæða.
Sókn Blue Lagoon Skincare, sem nú heitir Blue Lagoon Skin Science, hélt áfram á árinu bæði innanlands og á Bandaríkjamarkaði, um leið og félagið hélt upp á 30 ára afmæli sitt. Þeim áfanga var fagnað bæði innanlands og erlendis svo eftir var tekið. Metár var í veltu félagsins. Endursöluaðilum fjölgaði verulega á Bandaríkjamarkaði og BL+ vörurnar hlutu virt alþjóðleg verðlaun fyrir einstaka virkni sína.
Einnig er vert að nefna að bæði Retreat hótelið og Kerlingarfjöll Highland Base hlutu MICHELIN lykil síðastliðið haust. MICHELIN lyklar eru sambærilegir MICHELIN stjörnunum sem eru ein virtasta viðurkenning sem veitingastöðum getur hlotnast. Í því samhengi er einnig við hæfi að nefna að veitingastaðurinn Moss á Retreat hótelinu hélt sinni MICHELIN stjörnu nú þriðja árið í röð.
Stjórn félagsins hefur, eins og kom fram á hluthafafundi okkar í haust, tekið ákvörðun um að hefja að nýju undirbúning fyrir skráningu Bláa Lónsins hf. í kauphöll. Endanleg tímasetning liggur þó ekki fyrir en hún mun eðlilega ráðast af markaðsaðstæðum og þróun rekstrarumhverfis félagsins.
Bláa Lónið hf. gegnir lykilhlutverki sem leiðandi afl innan íslenskrar ferðaþjónustu.
Sérþekking og reynsla félagsins nýtist vel við þróun ábyrgrar og markvissrar uppbyggingar hvað varðar þróun heilsutengdrar ferðaþjónustu á landsvísu.
Markmiðið er, eins og áður, að styðja við, efla og styrkja Ísland sem framúrskarandi áfangastað í heimi heilsu- og vellíðunarþjónustu.
Þar liggja okkar tækifæri!
Takk fyrir!