Við erum umvafin framsæknum og skapandi einstaklingum sem hafa sjálfbærni að leiðarljósi við að nýta krafta náttúrunnar til að hanna upplifun og afurðir sem næra gesti á sál og líkama.
Hjá okkur starfa sérfræðingar í fjölbreyttum störfum á ólíkum sviðum, og við erum ákaflega stolt af fólkinu okkar, metnaðinum sem það býr yfir og þeim magnaða starfsanda sem hér ríkir.
Í dag erum við í fararbroddi í nýsköpun á sviði þjónustuhönnunar, upplifunar og vöruþróunar og það er frumkvöðlakrafti starfsfólksins okkar að þakka, því frá upphafi hefur það verið einlæg forvitni starfsfólksins sem drífur okkur áfram.
Við viljum bjóða þér að kynnast nokkrum af þeim stórkostlegu einstaklingum sem starfa hjá okkur. Í viðtölunum lýsa þau starfinu sínu, sjálfum sér og sinni vegferð.