Fólkið okkar

Við fögnum þeirra dýrmæta metnaði og sköpunar­krafti sem knýr okkur áfram.

Framsækin og forvitin

Við erum umvafin framsæknum og skapandi einstaklingum sem hafa sjálfbærni að leiðarljósi við að nýta krafta náttúrunnar til að hanna upplifun og afurðir sem næra gesti á sál og líkama.

Hjá okkur starfa sérfræðingar í fjölbreyttum störfum á ólíkum sviðum, og við erum ákaflega stolt af fólkinu okkar, metnaðinum sem það býr yfir og þeim magnaða starfsanda sem hér ríkir.

Í dag erum við í fararbroddi í nýsköpun á sviði þjónustuhönnunar, upplifunar og vöruþróunar og það er frumkvöðlakrafti starfsfólksins okkar að þakka, því frá upphafi hefur það verið einlæg forvitni starfsfólksins sem drífur okkur áfram.

Kynntu þér sögurnar

Við viljum bjóða þér að kynnast nokkrum af þeim stórkostlegu einstaklingum sem starfa hjá okkur. Í viðtölunum lýsa þau starfinu sínu, sjálfum sér og sinni vegferð.

Esther  Hjálmarsdóttir - Hjúkrunarfræðingur

Esther er hjúkrunarfræðingur í Lækningalind Bláa Lónsins og hún talar um litlu kraftaverkin sem hún sér á hverjum einasta degi í meðferðum skjólstæðinga sinna.