
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
- Tekið verður við áskriftum á vef Landsbankans. www.landsbankinn.is/blaalonid, frá kl. 10.00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16.00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
- Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera frá 100.000 kr. til 20.000.000 kr. í áskriftarbók A og yfir 20.000.000 kr. í áskriftarbók B.
- Fjárfestar geta breytt eða afturkallað áskrift sína á útboðstímabilinu.
- Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en 16. nóvember 2026.
- Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins er 18. nóvember 2026.
- Áætlað er að hlutabréf félagsins verði afhent kaupendum eigi síðar en 20. nóvember 2026.
- Áætlað er að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 20. nóvember 2026.