Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Bláa Lónsins á Arctic Adventures

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Bláa Lónsins hf. á Arctic Adventures hf. án skilyrða. Með samþykkinu er eina eftirstandandi fyrirvara í kaupsamningi félaganna aflétt og er gert ráð fyrir að lokið verði við kaupin á næstu vikum.

Greint var frá kaupunum í júní 2026. Þá kom fram að þau væru háð fyrirvörum um áreiðanleikakönnun beggja félaga ásamt samþykki hluthafafunda og svo Samkeppniseftirlitsins. Fyrri tveimur fyrirvörunum hefur þegar verið aflétt. Markmiðin með kaupunum eru að tryggja að Bláa Lónið leiði áfram uppbyggingu og fjárfestingar sem staðsetja Ísland sem einn af fremstu upplifunar- og vellíðunar áfangastöðum heims.

"Það eru spennandi tímar framundan. Við förum inn í Bláa Lóns samstæðuna með öfluga starfsemi víða um land, mikla sérþekkingu, sterka sölu- og rekstrarmenningu og síðast en ekki síst framúrskarandi starfsfólk. Með því að sameina ólíka styrkleika fyrirtækjanna skapast ný tækifæri til að þróa þjónustu og upplifanir, ná til fleiri gesta og styrkja stöðu Íslands sem áfangastaðar," segir Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures.” Með kaupunum verður til ein stærsta samstæða í íslenskri ferðaþjónustu. Samanlögð velta félaganna nam um 34,3 milljörðum króna árið 2025 og er fjöldi stöðugilda um 1.100.

„Við erum með skýra sýn á hvernig við viljum vaxa á næstu árum: með því að efla kjarnastarfsemina, með þróunarverkefnum víða um land og með ytri vexti. Samruninn við Arctic Adventures er hluti af þeirri vegferð. Vörumerki félagsins fá áfram að dafna og við hlökkum til að vinna með starfsfólkinu, “ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins.

Bláa Lónið vinnur nú að undirbúningi skráningar félagsins á aðalmarkað Nasdaq Iceland í þessum mánuði. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Fossar fjárfestingarbanki hafa umsjón með fyrirhuguðu hlutafjárútboði. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans veitti Bláa Lóninu einnig ráðgjöf við kaup á Arctic Adventures.

‍

---------------------------------------------------------------------------------

Bláa Lónið hf. er móðurfélag öflugra fyrirtækja sem eru leiðandi hvert á sínu sviði og kjarnast um upplifunarferðaþjónustu, heilsu og vellíðan, húðvörur og þróun sjálfbærra áfangastaða. Öll starfsemi okkar byggir á áralangri reynslu af rannsóknum, hönnun og nýsköpun með virðingu fyrir náttúrunni að

leiðarljósi. Samspil vel mótaðra áherslna í hönnun og viðskiptum hefur staðsett dótturfélög okkar fremst í sínum flokki.

‍