Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.

10. nóvember 2026 kl. 10:00, í Hörpu
‍

Bláa Lónið hf. og Landsbankinn hf. boða til opins kynningarfundar í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins og umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Beint vefstreymi verður aðgengilegt á vefsíðu Landsbankans www.landsbankinn.is/blaalonid og á vefsíðu Bláa Lónsins www.blaalonidhf.is/fjarfestar.


Fundurinn er ætlaður fjárfestum og almenningi þar sem farið verður yfir fyrirkomulag útboðsins og gefið tækifæri á því að spyrja spurninga. Á fundinum verða Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, og Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans.

- Útboð á hlutafé Bláa Lónsins hefst þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10:00 og lýkur kl. 16:00, föstudaginn 13. nóvember.

- Til sölu eru að 150.000.000 hlutir í Bláa Lóninu, þar af 45.000.000 (30%) í áskriftarbók A og 105.000.000 (70%) í áskriftarbók B.

- Tekið verður við áskriftum á bilinu 100.000 kr. til 20.000.000 kr. í áskriftarbók A á genginu 95 kr./hlut.

- Áskriftir yfir 20.000.000 kr. skulu berast í áskriftarbók B.

- Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en 16. nóvember 2026 og að hlutabréfin verði afhent kaupendum eigi síðar en 20. nóvember 2026.

- Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins er 18. nóvember 2026.

- Áætlað er að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland þann 20. nóvember 2026.

Hér má finna nánari upplýsingar um útboðið, áskriftarmöguleika og aðra tilhögun ásamt útboðsgögnum.


Nánari upplýsingar

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins sm@bluelagoon.is

‍