Tilkynning um úthlutun

Þátttakendum í almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins hf. („Bláa Lónið“ eða „félagið“), sem lauk föstudaginn 13. nóvember, hefur verið tilkynnt um úthlutun í útboðinu.


Alls bárust tæplega 4.000 áskriftir að andvirði um 15,3 ma.kr. í útboðinu sem er 1 milljarður umfram heildarstærð útboðsins.

· Heildarfjöldi seldra hluta í útboðinu nam alls 150 milljónum hluta, heildarsöluandvirði útboðsins nam tæpum 14,3 milljörðum króna og endanlegt gengi nam 95 kr. á hlut.

· Í áskriftarbók A er útboðsgengi 95 kr. á hlut. Áskriftir upp að 1 milljón króna að kaupverði voru ekki skertar en samsvarandi viðmið fyrir starfsmenn Bláa Lónsins var 5 milljón krónur. Skerðing áskrifta var að öðru leyti hlutfallsleg. Tilboð í áskriftarbók A bárust frá einstaklingum, lögaðilum sem og fagfjárfestum.

· Í áskriftarbók B er útboðsgengi 95 kr. á hlut. Áskriftir í áskriftarbók B voru ekki skertar.

· Seldir voru 150 milljón nýir hlutir að andvirði um 14,3 ma.kr. Útistandandi hlutir Bláa Lónsins í kjölfar útboðs nema 1.024.763.489 hlutum.

· Um 40% útboðsins komu í hlut einstaklinga en um 60% í hlut fagfjárfesta, fyrirtækja og annarra lögaðila.


Seldir hlutir í áskriftarbók A nema um 72,7 milljónum hluta að söluandvirði um 6,9 milljörðum króna. Við úthlutun voru fjárhæðir áskrifta umfram óskert viðmið skertar um 20%, þannig að viðmiðum gagnvart áskriftum starfsmanna Bláa Lónsins og almennum áskriftum var fylgt, líkt og stefnt var að samkvæmt skilmálum útboðsins. Seldir hlutir í áskriftarbók B nema um 77,3 milljónum hluta að söluandvirði um 7,3 milljarða króna.

Fjárfestum hefur nú verið send tilkynning um úthlutun og greiðsluseðill í samræmi við ofangreint. Gjalddagi áskriftarloforða er 18. nóvember nk.

Stefnt er að því að viðskipti með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hefjist þann 20. nóvember, en Nasdaq Iceland hefur samþykkt umsókn félagsins um töku hlutabréfanna til viðskipta með fyrirvara um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag.

Landsbankinn hf. og Fossar Fjárfestingarbanki hf. höfðu umsjón með almenna útboðinu og Landsbankinn hf. með töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.