Áhrif á fólkið okkar

Lífsgæði og vellíðan í forgangi.

Fjölbreytileiki og jöfnuður

Við sköpum rými fyrir alla til að nýta styrkleika sína og vinnum sífellt að því að koma í veg fyrir hvers konar mismunun með því að fagna fjöl­breyti­leikanum og gæta jafnréttis.

Við trúum því að þegar hæfileikar hvers og eins fái að njóta sín náum við árangri saman.

Lífsgæði og vellíðan í forgangi

Andleg og líkamleg heilsa er grundvöllur lífsgæða og vellíðunar og höfum við alltaf haft þessa mannlegu þætti í forgangi, bæði gagnvart starfsfólki og gestum. Í takt við leiðarljós okkar, Uppspretta vellíðunar í sátt við náttúru og nærsamfélag, leggjum við mikið upp úr stuðningi við fólkið okkar sem tekur virkan þátt í að viðhalda og móta þá sterku menningu og samheldni sem einkennir fram­sækinn og fjölbreyttan starfshóp okkar.