Við leggjum áherslu á að skapa varanlegt virði öllum til hagsbóta.

Bláa Lónið hf. leggur áherslu á að stunda viðskipti sem skapa sameiginleg verðmæti fyrir hagsmunaaðila, einkum og sér í lagi fyrir nærsamfélagið. Við viljum vera öðrum fyrirmynd um ábyrga viðskiptahætti. Með sjálfbærni að leiðarljósi tryggjum við að starfsemi okkar skapi varanlegt virði í stað skammtímahagnaðar, öllum til hagsbóta.

Við leggjum okkur fram við að efla efnahagslegan vöxt í þeim samfélögum sem við tengjumst og í gegnum starfsemi okkar og samstarfsaðila skapast um 836 bein störf, auk afleiddra starfa. Með því að fjárfesta í starfsfólki, þjálfun og samfélagsverkefnum leggjum við okkar af mörkum við að byggja upp sterkt og blómlegt hagkerfi.

Bláa Lónið hf. hvetur til ábyrgra viðskiptahátta og innkaupa á vörum og þjónustu með áherslu á hagkvæm og umhverfisvæn viðskiptatengsl við nærsamfélög okkar.
Með því að kaupa ferskt hráefni frá nærliggjandi birgjum stuðlum við að auknum rekstri á svæðinu. Staðbundin innkaup tryggja auk þess gæði og aðgengileika, draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda með styttri flutningsleiðum og draga úr umbúðamagni.
Þannig tryggjum við að nærsamfélög njóti góðs af áframhaldandi vexti okkar til framtíðar með aukum áreiðanleika í aðfangakeðjum og sérfræðiþekkingu í þjónustu.