Samfélagsáhrif

Við leggjum okkur fram við að hafa jákvæð áhrif á nærsamfélög okkar.

Jákvæð samfélagsáhrif

Við leggjum okkur fram við að hafa jákvæð áhrif á þau samfélög sem við störfum innan. Við kappkostum að skapa umhverfi sem laðar ekki aðeins að gesti heldur byggir upp öflug og þrautseig samfélög með blómstrandi staðbundnu hagkerfi, kröftugu vinnuafli og auknum lífs­gæðum fyrir alla í sátt og samlyndi við náttúruna.

Við viljum vera öðrum fyrirmynd og sýna fram á að stuðningur við samfélagslega innviði sé forsenda uppbyggingar til framtíðar.

Samfélags­verkefni

Með viðburðahaldi og markvissum uppbyggingarverkefnum erum við virkur þátttakandi í að efla sam­einingu og samtakamátt þeirra samfélaga sem við tengjumst.

Auk þess styðjum við fjárhagslega við ýmis verkefni á sviðum öryggis-, heilbrigðis-, íþrótta-, menningar- og umhverfismála í samræmi við leiðar­­ljós okkar og gildi. Þá for­gangs­röðum við viðskiptum við inn­lenda birgja og samstarfsaðila til að styðja við staðbundið efna­hags­líf.

Nýsköpun
og kynning

Bláa Lónið hf. tekur virkan þátt í fjölbreyttum samstarfsverkefnum sem kynna Ísland sem áfangastað, sérstaklega hvað varðar heilsu og vellíðan.

Þar á meðal eru verkefni í sölu- og kynningarmálum, sjálfbærni, umhverfis­málum og nýsköpun. Með þátttöku í þessum verkefnum leggjum við okkar lóð á vogarskálar verðmætasköpunar og aukins samkeppnishæfis Íslands á sviði ferðaþjónustu og nýsköpunar.