Við tölum fyrir samfélagi án sóunar.

Sjálfbær nýting auðlinda og verndun umhverfis til að tryggja lífsgæði komandi kynslóða haldast í hendur við sjálfbæra þróun Bláa Lónsins hf.
Náttúran er takmörkuð auðlind og hefur það frá upphafi verið hornsteinn í okkar nálgun að vaxa á ábyrgan hátt. Við leggjum áherslu á að draga úr sóun og fjölnýta auðlindastrauma við verðmætasköpun með það að markmiði að tryggja að uppbygging skaði ekki umhverfið heldur auðgi það og varðveiti.




Við tölum fyrir samfélagi án sóunar og fjárfestum í verkefnum sem stuðla að hagkvæmni, sameiginlegri velsæld og jafnvægi manns og náttúru. Við leggjum okkur fram við að sýna að vel ígrunduð nálgun leiðir af sér varanlega framþróun samfélaga til sjálfbærni.