Árið 2025 í hnotskurn.

Rekstur Hótel Hrauneyja gekk vel á síðasta ári. Áfram hefur verið unnið að endurbótum innanhúss, og voru breytingar gerðar á bæði veitingastað og móttöku sem hefur bætt ásýnd sameiginlegra rýma og upplifun gesta. Rekstur tjaldvsæðis í Sandártungu bættist við starfsemi Hrauneyja á árinu, auk alls reksturs á fjallaskálanum Hólaskógi. Verslun opnaði í Hrauneyjum í júni, þar sem gestir geta keypt útivistarbúnað og vörur frá Blue Lagoon Skin Science.
Á árinu var einnig unnið að þróun nýs vefsvæðis fyrir Hrauneyjar, þar sem gestir geta skoðað framboð, bókað gistingu og kynnt sér svæðið.
Rekstur Jöklaveraldar að Hoffelli gekk vel á liðnu ári. Í byrjun júlí opnaði nýtt baðsvæði, en miklar endurbætur voru gerðar á aðstöðu við heita potta og nýir búningsklefar reistir. Mikil aukning var á aðsókn í böðin strax í kjölfar opnunarinnar. Til viðbótar við framkvæmdir á baðsvæði var ráðist í miklar endurbætur á aðkomu og bílaplani, auk þess sem húsgögnum var skipt út að miklu leyti. Verslun opnaði einnig í Hoffelli í sumar, þar sem gestir geta keypt útivistarbúnað og vörur frá Blue Lagoon Skin Science.
Gistiaðstaða að Miðfelli bættist við rekstur félagsins að Hoffelli á árinu, en þar eru nú fjórar nýjar íbúðir til útleigu í uppgerðum bóndabæ.
Í desember voru haldin jólahlaðborð fyrir heimafólk, bæjarstjórn og fyrirtæki á svæðinu, og voru þau vel sótt og vel af þeim látið.