Bláa Lónið

Árið 2025 í hnotskurn.

Framkvæmdir

Eftir langt jarðhræringatímabil og breytingar í kjölfar þess var ráðist í miklar endurbætur á upplifunarsvæðum Bláa Lónsins árið 2025 og stóðu framkvæmdir yfir fyrstu átta mánuði ársins.

Í apríl opnaði nýtt upplifunarsvæði með þurrgufu, gufuhelli og kaldara lóni, í júlí lauk framkvæmdum á klefum þar sem fjöldi skápa og sturta var aukinn til að bæta flæði gesta og í ágúst opnaði nýtt bílastæði ásamt tímabundnu töskuhúsi.

Starfsfólk Bláa Lónsins hefur staðið af sér áskoranir í kjölfar jarðhræringa og framkvæmda með glæsibrag og tókst það á við tvær skyndilegar rýmingar á árinu á faglegan og yfirvegaðan hátt.  

Sala og tæknilausnir

Á árinu voru gervigreindarlausnir innleiddar í þjónustuver og söludeild, sem leysa nú einföld verkefni og auka skilvirkni, afköst og þjónustu við gesti. Silica Hotel bættist einnig við endursöluframboð á vef Travia, auk þess sem sýnileiki Bláa Lónsins og Silica Hotel á fjölbreyttum endursöluvefjum var aukinn. 

Áfangastaðurinn Bláa Lónið var kynntur á ýmsum viðburðum á árinu, innanlands sem utan, og barst hróður fyrirtækisins alla leið á Heimssýninguna í Japan, þar sem Bláa Lónið stóð fyrir vel heppnuðum viðburði í samstarfi við Kerecis og Íslandsstofu.

Framboð og viðburðir

Nýjungar bættust við pakkaframboð Bláa Lónsins, en Signature pakki bættist við almennt framboð, auk þess sem árstíðarbundnum pökkum í kringum páska, Valentínusardag, jól og fleiri hátíðir var bætt við og reyndust þeir vel. Einnig var fyrirkomulagi á samfloti í samstarfi við Flothettu breytt, og fjölbreyttir árstíðarbundnir matseðlar þróaðir í samstarfi við veitingastaðinn Lava.  

Á sumarsólstöðum voru haldnir tónleikar í Bláa Lóninu og kom hljómsveitin Hipsumhaps fram við mikla lukku. Í lok árs var svo slegið til veislu fyrir innlenda samstarfsaðila, sem nutu skemmtilegrar kvöldstundar saman í Svartsengi.

Verðlaun og viðurkenningar

Bláa Lónið hlaut gullverðlaun hvatningarverðlauna CIE Tours annað árið í röð fyrir bestu heimsóknina heilt á litið.