Árið 2025 í hnotskurn.

Árið 2025 var besta rekstrarár Blue Lagoon Skin Science frá upphafi, en heildarsala jókst um rúm 21% á milli ára. Mesti vöxtur í sölu var í Bandaríkjunum en jafnframt var mikill vöxtur í heildsölu bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Mikil fjölgun var auk þess í teymi Blue Lagoon Skin Science á árinu, en fjöldi starfsfólks á skrifstofu tvöfaldaðist.
Fyrsta húðvara Blue Lagoon Skin Science, Silica Mud Mask, kom á markað árið 1995, og var haldið upp á afmælisárið með ýmsum hætti. Til að mynda var nokkrum auglýsingaherferðum hrint úr vör, ný sett og vörur þróaðar í samstarfi við íslenska hönnuði og listafólk, auk þess sem staðið var fyrir fjölbreyttum og vel sóttum viðburðum á Íslandi og í Bandaríkjunum fyrir viðskiptavini, áhrifavalda, blaðamenn og annað samstarfsfólk.
Vorið 2025 var ný vara kynnt til leiks, kremið BL+ The Cream Light, sem bætist við BL+ vörulínuna sem unnin er úr lífvirka hráefninu BL+ COMPLEX og er þróað af Blue Lagoon Skin Science. Kremið fékk gríðarlega góðar viðtökur strax í upphafi og var það meðal annars valið besta rakakremið af tímaritinu Elle Magazine, auk þess sem það hlaut húðvöruverðlaun Women's Health og verðlaunin Grooming Awards 2025 hjá tímaritinu GQ.
Jólaherferð Blue Lagoon Skin Science fór að vanda í loftið í aðdraganda jóla, að þessu sinni undir yfirskriftinni Undur í hverjum dropa. Að því tilefni var nýtt jóladagatal kynnt til sögunnar, og fóru viðtökur á því fram úr væntingum. Samhliða jóladagatalinu var glerinnsetning innblásin af vatnsdropum Bláa Lósins sett upp í verslun Blue Lagoon Skin Science á Laugavegi, í samstarfi við íslenska vöruhönnuðinn Siggu Heimis, auk þess sem dagatalinu fylgdi sérhannaður silkiklútur.
Smartland valdi BL+ The Serum sem serum ársins og hin nýja vara BL+ The Cream Light var valin besti rakagjafinn af Elle Magazine og GQ Magazine. Algae Mask var valinn besti andlitsmaskinn af tímaritinu InStyle og ritstjórar og sérfræðingar bandaríska tímaritsins Vogue fjölluðu sérstaklega um BL+ Eye Cream og völdu Silica Mud Mask sem besta leirmaskann. Aðventudagatal Blue Lagoon Skin Science var valið eitt það besta í flokki “Beauty Advent Calendars” í Bandaríkjunum og BL+ Eye Serum fékk verðlaun Shape Skin.
