Samfélagsstyrkir

Styrkir veittir árið 2025.

Samfélagsstyrkir

Við viljum vera öðrum fyrirmynd og sinnum fjölbreyttum verkefnum sem efla og styðja við okkar nærsamfélög. Þannig sýnum við fram á að uppbygging sem styrkir samfélagslega innviði er uppbygging til framtíðar.

Meðferðir

Bláa Lónið hf. hefur boðið upp á einstaklingsmiðaðar psoriasismeðferð sem er viðurkennd af íslenskum heilbrigðisyfirvöldum síðan 1994. Meðferðin fer fram í Lækningalind Bláa Lónsins í Svartsengi og byggir á einstakri virkni jarðsjávarins. Meðferðin er náttúruleg og er jarðsjórinn nýttur með sjálfbærum hætti með það að markmiði að bæta lífsgæði psoriasissjúklinga þeim að kostnaðarlausu og án opinberrar greiðsluþátttöku.

Rannsóknir og þróun

Bláa Lónið hf. hefur frá upphafi lagt áherslu á öflugt rannsóknarstarf og í Rannsókna- og þróunarsetri Bláa Lónsins í Svartsengi er unnið að fjölbreyttum verkefnum. Má þar nefna rannsóknir á vistkerfi lónsins, áhrifum böðunar í lóninu á psoriasis, lífvirknirannsóknir á innihaldsefnum jarðsjávarins, þróun sjálfbærra framleiðsluaðferða lífvirkra innihaldsefna, auk þróunar og klínískra prófana á húðvörum fyrir Blue Lagoon Skin Science.  

Stuðningur við nærsamfélagið

Með viðburðahaldi og uppbyggingarverkefnum erum við virkur þátttakandi í að efla sameiningu og samtakamátt okkar nærsamfélaga. Bláa Lónið hf. styður fjárhagslega við vel valin öryggis-, heilbrigðis-, íþrótta-, menningar- og umhverfisverkefni.  

Auðlindagarður

Bláa Lónið hf. er hluti af Auðlindagarðinum á Suðurnesjum og starfar innan UNESCO Reykjanes Global Geopark. Samstarfinu um Auðlindagarðinn er ætlað að efla svæðið sem áfangastað, styðja við sjálfbæra nýtingu auðlinda í sátt við náttúruna og auka við þekkingu, vitund og verndun jarðminja á svæðinu. Bláa Lónið hf. hefur undanfarin ár lagt sitt af mörkum við að efla verkefnið með uppbyggingu við Reykjanesvita og árið 2024 opnaði þar þjónustumiðstöð með það að markmiði að bæta þjónustu og upplýsingagjöf til þeirra sem ferðast um svæðið.

Helstu verkefni

Þrátt fyrir að árið 2025 hafi verið krefjandi þá stóð Bláa Lónið hf. við öll sín markmið um að hafa varanleg og jákvæð áhrif á nærsamfélagið og umhverfið með fjölbreyttum og markvissum aðgerðum.  

Líkt og fyrri ár hélt fyrirtækið áfram að forgangsraða viðskiptum við innlenda birgja og samstarfsaðila, til að styðja við staðbundið efnahagslíf. Að auki studdi Bláa Lónið hf. við ýmis samfélagsverkefni og árið 2025 úthlutaði félagið 150 milljón krónum í styrki til samfélagsins.  

Einn af hápunktum ársins var endurnýjun á samningi Bláa Lónsins hf. við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs til næstu þriggja ára. Samstarfið undirstrikar skuldbindingu okkar til stuðnings við íslenska hönnun og skapandi greinar.  

Bláa Lónið hf. studdi einnig Krabbameinsfélagið með þátttöku í átaksverkefnunum Bleiku slaufunni og Mottumars, en fyrirtækið hefur veitt Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins stuðning allt frá árinu 2015.  

Annað framtak sem vert er að minnast á var utanvegahlaupið Kerlingarfjöll Ultra, sem haldið var í annað sinn sumarið 2025. Bæði þátttaka og ánægja gesta fór fram úr björtustu vonum og er ánægjulegt að geta haldið viðburð af þessu tagi sem hefur jákvæð áhrif á þróun á svæðinu.

Auk þess veitti Bláa Lónið hf. 1304 psoriasismeðferðir í Lækningalind sinni í Svartsengi á árinu, íslenskum sjúklingum að kostnaðarlausu og án opinberrar greiðsluþátttöku.