The Retreat

Árið 2025 í hnotskurn.

Endurnýjun og endurbætur

Í kjölfar jarðhræringa og óvissuástands undanfarinna ára var áhersla á endurnýjun og styrkingu teyma og verkferla hjá The Retreat á liðnu ári. Jarðhræringarnar gerðu áfram vart við sig, en fagleg viðbrögð hótelstarfsfólks við rýmingunum tveimur sem fram fóru á árinu voru til fyrirmyndar.

Framkvæmdir ársins töldu m.a. endurbætur á afleggjara og aðkomu að hótelinu ásamt bílastæði, auk þess sem endurbætt rými fyrir meðferðir var opnað á Retreat Spa. Í þjálfun starfsfólks var áhersla á bætta þjónustu og aukna þekkingu á alþjóðlegri fágætisferðamennsku auk þess sem starfsnemi í snyrtifræði var við störf á Retreat Spa allt árið.

Söluteymi The Retreat sótti ýmsa viðburði á árinu, innanlands sem utan, og var framboð The Retreat kynnt á sýningum um fágætisferðamennsku í Mið- og Suður-Ameríku, Bandaríkjunum, Afríku og Mið-Austurlöndum.  

Moss

Dagskrá veitingastaðarins Moss var glæsileg síðastliðið ár, en viðburðir ársins telja meðal annars Chateau Figeac vínviðburð ásamt masterklass í vínkjallaranum, kvöldverði með Dom Pérignon Society og Petrus, auk þess sem Moss hóf samstarf við Hið Norðlenzka Styrjufélag og er nú boðið upp á kampavínssmökkun með íslenskum kavíar á veitingastaðnum.

Vöruframboð

Ný og endurbætt bókunarvél var tekin í gagnið, auk þess sem gisting á The Retreat bættist við framboð á endursöluvef Travia. Einnig var áveðið að bjóða þeim gestum sem bóka tvær nætur eða fleiri sérstök kjör undir formerkjunum A Quet Getaway, sem hefur gengið vonum framar.

Framboð til gesta var einnig aukið á árinu en dagsgestir geta nú bókað heimsókn til heils dags í Retreat Spa og bókað Lava Cove í bókunarvél. Auk þess var BL+ andlitsmeðferðum bætt við framboð meðferða í Retreat Spa og jóga- og hugleiðslutímum bætt við framboð afþreyingar fyrir hótelgesti.

Verðlaun og viðurkenningar

The Retreat Hotel hlaut sinn fyrsta Michelin-lykil á árinu og Moss hélt sinni Michelin-stjörnu, sem veitingastaðurinn hefur gert ár hvert frá 2023. The Retreat Hotel hlaut Wold’s best verðlaun Travel+Leasure og Moss hlaut verðlaun Wine Spectator, Best of Award of Excellence.