Hrauneyjar og Jöklaveröld í Hoffelli.

Á Hótel Hrauneyjum er boðið upp á gistingu á viðráðanlegu verði nálægt ósnortinni náttúru í návígi við hálendi Íslands. Þar er einnig fjallaskáli með svefnpokagistingu og veitingastaður. Auk þess er stutt í marga af fegurstu stöðum hálendisins úr Hrauneyjum.
Vefur Hrauneyja
Að Hoffelli er gistiaðstaða í fallega uppgerðum bóndabæ og heit böð, rétt við rætur Hoffellsjökuls. Böðin hafa lengi verið vel sótt af heimamönnum en aðstaðan hefur nýlega fengið andlitslyftingu.
Böðin við Hoffell eru þau einu á suðausturhorni Íslands og mun frekari uppbygging á svæðinu tryggja samfellu í þjónustu og upplifun á Suðausturlandi.