Eitt af undrum veraldar.

Vatnið í Bláa Lóninu er einstakt á heimsvísu. Það á uppruna sinn á 2000 metra dýpi, samanstendur af salt- og ferskvatni og er ríkt af kísli, þörungum og steinefnum. Árið 2012 var vatn Bláa Lónsins valið á lista National Geographic sem eitt af 25 undrum veraldar.

Bláa Lónið var stofnað árið 1992 og er nú einn fjölsóttasti ferðamannastaður á Íslandi. Í Bláa Lóninu er maskabar, gufubað, eimbað, kaldara lón og bar, auk þess sem boðið er upp á nudd og aðrar meðferðir ofan í lóninu.
Vefur Bláa Lónsins
Silica Hotel er fjögurra stjörnu hótel rétt við Bláa Lónið. Hótelið var upprunalega stofnað sem Lækningalind Bláa Lónsins og þar er enn rekin meðferðarstöð þar sem boðið er upp á náttúrulegar meðferðir við psoriasis, íslenskum sjúklingum að kostnaðarlausu og án opinberrar greiðsluþátttöku.
Vefur Silica Hotel
Á veitingastaðnum Lava er boðið upp á matargerð úr fersku, íslensku gæðahráefni. Veitingastaðurinn er byggður inn í hraunið sem umlykur Bláa Lónið. Þaðan er einstakt útsýni yfir lónið og hraunbreiðuna.
Um Lava