Ævintýralegur áfangastaður á hálendi Íslands.


Í Kerlingarfjöllum er boðið upp á einfalda tjaldgistingu, þægindi á hótelherbergi og allt þar á milli. Á hótelinu eru notaleg herbergi af ýmsum stærðum, vel búnar svítur og einkaskálar hannaðir með hámarksþægindi í huga.
Í dalnum neðan við hótelið eru svo gistiskálar með svefnpokaplássi fyrir hópa og tjaldsvæði í nánd við náttúruna.
Saman mynda þessar einingar lítið fjallaþorp sem gerir ferðalöngum kleift að njóta hálendisins á þann hátt sem þeim hentar og auðveldar aðgengi að óbyggðum Íslands á ábyrgan hátt.

Hálendisböðin í Kerlingarfjöllum eru staðsett á bökkum Ásgarðsár með útsýni yfir fjallgarðinn í kring. Í Hálendisböðunum er meðal annars heit setlaug, kaldur pottur, þurrgufa og bar.
Vatnið í Hálendisböðunum er ölkelduvatn sem á upptök sín neðanjarðar, við nærliggjandi háhitasvæði.

Í Kerlingarfjöllum er boðið upp á úrval afþreyingar á borð við fjallahjólreiðar, buggy-akstur, fjallaskíði, snjósleða og fleira.
Margar spennandi gönguleiðir liggja um svæðið og er fjallahlaupið Kerlingarfjöll Ultra, þar sem hlauparar spreyta sig á krefjandi hlaupaleiðum um fjöll og firnindi hálendisins, haldið á svæðinu í júlí ár hvert.