Þróunarverkefni

Í sátt og samlyndi við náttúru og nærsamfélag.

hedgehog

Með sjálf­bærni að leiðarljósi

Þróunarverkefni Bláa Lónsins hf. hafa byggt á sömu gildum frá upphafi þar sem einkunnarorð fyrirtækisins eru ávallt höfð að leiðarljósi: Uppspretta vellíðunar í sátt við náttúru og nærsamfélag.

Öll uppbygging fer fram í samræmi við skuldbindingu okkar til sjálf­bærni fyrir umhverfið, fólk, samfélög og efnahag.

Upp­bygging við Rauðukamba

Við Rauðukamba í Þjórsárdal rís 40 herbergja hótelið Mountain Retreat. Sambyggð hótelinu, sem rís í hlíð Rauðukamba, verða Fjallaböðin með einstakt útsýni yfir náttúru­perluna Þjórsárdal.

Í dalnum rís einnig Gestastofa Þjórsárdals sem mun hýsa móttöku Fjallabaðanna, upplýsingamiðstöð og veitingarekstur, auk smáhýsa­þyrpingar og tjaldsvæðis við Selhöfða.

Vefur Þjórsárdals

Hoffell í Hornafirði


Undirbúningur fyrir uppbyggingu á baðstað við Hoffellslón í Hornafirði er þegar hafinn og stendur um­hverfis­mat á framkvæmdinni yfir. Baðstaðurinn verður einstakur á heimsvísu og munu gestir horfa yfir jökullónið úr baðlóninu.

Á svæðinu verður einnig jöklasýning og aðstaða til veitingareksturs. Ráðgert er að framkvæmdir hefjist árið 2027 og áfangastaðurinn opni árið 2030. Uppbygging á svæðinu mun tryggja samfellu í þjónustu og upplifun á Suðausturlandi.