Margverðlaunað hótel í hæsta gæðaflokki.


The Retreat Hotel at Blue Lagoon Iceland er byggt inn í aldagömul jarðlög og umkringt jarðsjó Bláa Lónsins.
Á hótelinu eru 60 nútímalegar svítur þar sem samspil arkitektúrs og náttúrunnar í kring skapa hágæðaupplifun í einstöku umhverfi. Þjónusta og aðbúnaður eru eins og best verður á kosið.

Retreat Spa er byggt inn í hraunlög á suðurbakka Bláa Lónsins. Þar er einkalón og einkaklefar fyrir gesti, veitingastaður og slökunarrými.
Gestir hafa auk þess aðgang að Ritual Bláa Lónsins, ferli sem byggir á byggir á nærandi eiginleikum jarðsjávarins og hannað var af fagfólki sem hefur rannsakað jarðsjóinn og möguleika hans í 30 ár.

Veitingastaðurinn Moss er einn sá fremsti á Íslandi og var fyrsti hótelveitingastaðurinn hér á landi til að hljóta Michelin-stjörnu árið 2023. Þeim heiðri hefur staðurinn haldið ár hvert síðan.
Á Moss er árstíðarbundið hráefni af bestu gæðum notað til að skapa nýstárlega rétti undir áhrifum íslenskrar og asískrar matargerðar.