Húðvörur úr lífvirkum innihaldsefnum
Bláa Lónsins.


Árið 1987 hófu vísindamenn sýnatöku úr jarðsjó Bláa Lónsins. Við greiningu kom í ljós að vatnið er ríkt af steinefnum, sérstaklega kísli, og niðurstöður úr nánari rannsóknum sýndu fram á að vatnið hafi góð áhrif á einkenni psoriasis-sjúklinga.
Þessar rannsóknir urðu til þess að Bláa Lónið öðlaðist einkaleyfi á notkun helstu lífvirku efna jarðsjávarins í snyrtivörur og lyf. Vöruþróun og framleiðsla Blue Lagoon Skin Science hefur byggt á vísindum og rannsóknum alla tíð síðan.

Skjólstæðingar sem sóttu náttúrulegar psoriasis-meðferðir í Lækningalind Bláa Lónsins, þar sem kísilríkur jarðsjórinn gegndi lykilhlutverki, vildu fá kísilinn með sér heim til að geta haldið meðferðinni áfram þar.
Eftir ferli rannsókna og tilrauna varð niðurstaðan hin einstaka húðvara Silica Mud Mask sem hefur nú, 30 árum síðar, öðlast heimsfrægð fyrir virkni sína. Varan markaði jafnframt upphaf húðvörumerkisins sem nú er rekið undir formerkjum Blue Lagoon Skin Science.

BL+ COMPLEX er einstakt og áhrifaríkt hráefni þróað af Blue Lagoon Skin Science. Efnið örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar.
Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísli úr Bláa Lóninu djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Hráefnið er einstakt á heimsvísu og finnst einungis í húðvörulínunni BL+.