Hlutdeildar­félög

Við tökum virkan þátt í þróun íslenskrar baðmenningar.

Íslenskar heilsulindir

Bláa Lónið hf. gegnir lykilhlutverki sem leiðandi afl innan íslenskrar ferðaþjónustu. Samhliða ábyrgri en markvissri stækkun á eignasafni okkar og uppbyggingu nýrra áfanga­staða nýtist sérþekking og reynsla okkar vel í þróun heilsu­tengdrar ferðaþjónustu á landsvísu.

Í gegnum dótturfélag okkar, Íslenskar heilsulindir ehf., erum við virkur þátttakandi í þróun íslenskrar baðmenningar, en félagið á hlut í baðstöðum víða um land.

Markmið okkar er að til verði sterkt net af framúrskarandi baðstöðum sem styrkir forystu Íslands á alþjóð­legum vettvangi heilsu­ferða­mennsku.

Hlutdeildarfélög

Fontana

Laugarvatn liggur yfir heitum reit og er jarðvegurinn þar kraumandi af sjóðandi vatni sem notað hefur verið til matargerðar, baða og húshitunar kynslóðum saman.

Nýtt og endurbætt baðlón opnar í Fontana sumarið 2026. Breytingar á aðstöðunni í Fontana fela meðal annars í sér nýja sánu, endurbætur á búningsklefum, laugar sem teygja sig að vatninu og nýja hveragufu beint yfir einum kröftugasta hvernum. Breytingunum er ætlað að upphefja sögu svæðisins og náttúruna í kring.

Vefur Fontana

Jarðböðin við Mývatn

Saga gufubaða í Mývatnssveit á rætur sínar að rekja til fyrri alda en í dag er henni haldið á lofti í nútímalegu umhverfi Jarðbaðanna við Mývatn. Þar er gestum frá öllum heimshornum boðið að upplifa íslenska náttúru og gestrisni.

Framkvæmdir standa yfir á aðstöðu Jarðbaðanna við Mývatn þar sem ný bygging rís, auk þess sem baðaðstaða verður bætt og stækkuð. Hönnun byggingarinnar og nýja lónsins tekur mið af einstakri náttúru Mývatnssveitar. Nýja byggingin er felld inn í umhverfið og grjót af svæðinu er nýtt í kanta, klæðningar, veggi og gólf. Gestir munu geta gengið beint ofan í lónið úr búningsklefum og ferðast um þrjú mismunandi svæði. Einnig bætist við grjótgufubað, foss, nýr bar og hraungjá sem skilur á milli svæða.

Vefur Jarðbaðanna við Mývatn