Þróunarverkefni
Þróunarverkefni Bláa Lónsins hf. hafa frá upphafi verið mótuð í sátt og samlyndi við náttúru og nærsamfélag hvers áfangastaðar fyrir sig. Hvert verkefni er unnið samkvæmt skuldbindingu okkar til sjálfbærni fyrir umhverfið, fólk, samfélög og efnahag. Við stöndum nú fyrir uppbyggingu í Þjórsárdal og við Hoffell og nálgumst þau verkefni út frá okkar skýru framtíðarsýn, nú sem endranær.